Aðfararnótt Þjóðhátíðardagsins 17.júní var mikil umferð og óvenjuleg á veginum sem liggur umhverfis Mývatn. Þar voru á ferð þátttakendur í The MoonWalk Iceland 2012. Alls 76 Bretar, 75 konur og 1 karlmaður tóku þátt í þessari áskorum um að kraftganga heilt Maraþon, rúmlega 42 km, til að safna peningum á vegum bresku góðgerðarsamtakanna Walk The Walk. Þetta er í annað skipti sem MoonWalk Iceland fer fram.
Samskonar göngur hafa á síðustu vikum einnig farið fram í London og Edinborg, og 46 þáttakendanna hafa tekið þátt í öllum þremur viðburðunum, sem sagt unnið það afrek að kraftganga þrjú Maraþon á 5 vikum.
Þáttakendur lögðu af stað frá rásmarki skammt frá Jarðböðunum nákvæmlega á miðnætti undir dynjandi harmoníkuspili, allar klæddar glaðlega skreyttum bleikum brjóstahöldurum. En bleikur brjóstahaldari er skrásett vörumerki samtakanna Walk the Walk. Gengið var sem leið liggur í kringum Mývatn og aftur að endamarkinu í Jarðböðunum. Þar beið þeirra morgunverður, nudd og heitt bað.
Markmiðin með göngunni eru að safna peningum til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini, vekja athygli á málefninu og ekki síst að skemmta sér saman.
Bresku samtökin Walk the Walk skipulögðu gönguna, og þáttakendur í göngunni í Mývatnssveit hafa þegar safnað á tólftu miljón ísl.króna með því að taka þátt, og þeim peningum, eins og öðru fé sem samtökin safna, verður veitt í styrki til rannsókna á brjóstakrabbameini og til að bæta umönnum krabbameinssjúklinga á Bretlandseyjum.
Að ganga Tunglgönguna við Mývatn er einstök upplifun fyrir þáttakendur, ekki síst vegna þess að á þessum árstíma er bjart alla nóttina, og þær fengu því að uppplifa bæði sólarlag og sólarupprás á þessari köldu töfranótt við Mývatn. Til að styðja konurnar í gegnum nóttina og hvetja þær áfram var lið sjálfboðaliða frá samtökunum með stofnandann og stjórnandann Ninu Barough í broddi fylkingar. Sjálfboðaliðarnir hvöttu göngukonurnar og sáu þeim fyrir vatni og vistum, einnig var hjúkrunarfræðingur á ferðinni alla nóttina, sem fylgdist með heilsufari þáttakenda. Það var mikill fögnuður um kl. 6 á sunnudagsmorguninn þegar þær fyrstu komu í mark við Jarðböðin.
The MoonWalk Iceland var nú haldið í annað sinn, og samtökin eru þegar er farin að undirbúa Moonwalk 2013. Áhugasamir um verkefnið geta farið inn á vefsíðuna www.walkthewalk.org og kynnt sér málið betur.
Samstarfs-og styrktaraðilar The MoonWalk Iceland 2012 á Íslandi eru m.a. : Sel-Hótel Mývatn,Kea Hótel Gígur, Fjallasýn Rúnars Óskarssonar, Norðursigling á Húsavík, Jarðböðin við Mývatn, Magma Essentials, Ferðaþjónustan Skúlagarði, Markaðsstofa ferðamála á Norðurlandi, Discover the World, auk Ekrunnar og Vífilfells sem gáfu banana og vatn fyrir þáttakendurna.
UM Walk the Walk:
Um Kraftgöngu:
- Talið er að þeir sem stunda kraftgöngu á hraða sem að lágmarki er 6 km á klst noti um það bil jafn mikla orku eins og hlauparar, og þessi þjálfunaraðferð býður þannig upp á mikla fitubrennslu.
- Haft hefur verið eftir sérfræðingum að ganga sé því sem næst fullkomin aðferð til að halda sér í formi.
- Með því að ganga af krafti a.mk. 45 mín. 4 sinnum í viku er hægt að missa allt að 8-9 kg á ári, án þess að breyta um mataræði.