Á morgun, laugardagurinn 10. desember, er alþjóðlegur dagur mannréttinda en á þeim degi árið 1948 var Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna samþykkt. Dagurinn er jafnframt lokadagur í alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Af því tilefni verður boðið upp á mannréttindadagskrá í Eymundsson kl. 13:00 þar sem Ágúst Þór Árnason, brautarstjóri lagadeildar HA mun ávarpa gesti.
Sigríður Halldórsdóttir, prófessor við heilbrigðisvísindasvið HA flytur erindi, og Vigdís Grímsdóttir les valinn kafla úr bók sinni Trúir þú á töfra. Einnig geta gestir í Eymundsson tekið þátt í alþjóðlegu bréfamaraþoni Amnesty International með því að skrifa undir kort til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi. Tilbúin bréf til stjórnvalda verða á staðnum. Allir velkomnir, kaffi og piparkökur.
Á morgun fer einnig fram sala á armböndunum Segðu frá til styrktar Aflinu.