Mæðradagsganga Göngum saman á Akureyri á sunnudaginn

Gengið verður frá Lystigarðinum á Akureyri en sl. haust var gengið í Kjarnaskógi.
Gengið verður frá Lystigarðinum á Akureyri en sl. haust var gengið í Kjarnaskógi.

Styrktarfélagið Göngum saman efnir til vorgöngu fyrir alla fjölskylduna víða um land á mæðradaginn, sunnudaginn 13. maí, kl. 11.00. Á Akureyri verður gengið frá Lystigarðinum, gengið verður í um klukkustund og verða tvær vegalengdir í boði. Einnig verður gengið í Reykjavík, Akranesi, Borgarnesi, Stykkishólmi, Patreksfirði, Ísafirði,  Egilsstöðum, Reyðarfirði, Höfn, Hveragerði, Reykjanesbæ og frá Stórutjarnaskóla. Gangan er gjaldfrjáls en göngufólki gefst kostur á að styrkja rannsóknir á brjóstakrabbameini, með frjálsum framlögum eða með því að festa kaup á varningi Göngum saman. Allar göngur hefjast kl. 11 og nánari upplýsingar um hvern stað og frekari upplýsingar um félagið er að finna á heimasíðunni www.gongumsaman.is

Styrktarfélagið Göngum saman  nýtur góðs af samstarfi við Landssamband bakarameistara sem stendur fyrir sölu á brjóstabollum í bakaríum um allt land dagana 10 – 13. maí í tengslum við mæðradaginn. Landsmenn eru hvattir til að bjóða upp á brjóstabollur með kaffinu alla mæðradagshelgina og láta þannig gott af sér leiða, brjóstanna vegna. Styrktarfélagið Göngum saman styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og úthlutar styrkjum í október ár hvert. Félagið var stofnað haustið 2007 og hefur frá stofnun veitt íslenskum rannsóknaraðilum á sviði brjóstakrabbameins um 22 milljónir króna í styrki. Göngum saman leggur áherslu á miklvægi hreyfingar til heilsueflingar og til að afla fjár í styrktarsjóð félagsins.

Nýjast