Lýsir vonbrigðum með aðgerðaleysi umboðsmanns skuldara

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar Akureyrarabæjar mætti á síðasta fund félagsmálaráðs og lagði fram gögn um þörf fyrir aukna mönnun í félagsþjónustu. Framundan eru breytingar í starfmannamálum og æskilegt væri að bæta við stöðubroti til að geta betur tekist á við aukin verkefni, m.a. vegna erfiðra skuldamála.  

Félagsmálaráð samþykkti fyrir sitt leyti að heimila aukningu í félagsþjónustu á fjölskyldudeild sem nemur 60% stöðu í eitt ár frá 1. ágúst nk. Málinu vísað til bæjarráðs. Félagsmálaráð lýsir jafnframt yfir vonbrigðum sínum með aðgerðaleysi umboðsmanns skuldara sem ekki hefur svarað áskorunum um starfsmann á Norðurlandi. Starfsmönnum er falið að að ítreka erindi til umboðsmanns skuldara og velferðaráðherra til að mæta brýnni þörf þeirra sem eiga í erfiðum skuldavanda á Norður- og Austurlandi.

Nýjast