Lumbana samdi við KA

Sænski varnarmaðurinn Boris Lumbana hefur gengið til liðs við KA og er hann væntanlegur til landsins í dag og mun verða í æfingabúðum með KA-liðinu um helgina.

Boris Lumbana er miðvörður en hefur einnig spilað á miðjunni hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu Örebro og er fæddur 1991. Hann spilaði nokkra leiki með aðalliðinu á undirbúningstímabilinu.

 

Lumbana kom á reynslu til KA fyrir páska og í kjölfarið var gengið frá samningi við hann og Örebro um að hann komi til KA á láni út komandi keppnistímabil, segir á vef KA.

Nýjast