Lokið við að bora rannsóknar- holur vegna Vaðlaheiðarganga

Fyrr í þessum mánuði var lokið við bora tvær rannsóknarholur vegna Vaðlaheiðarganga, annars vegar í Eyjafirði og hins vegar í Fnjóskadal. Boranir gengu vel og ekki er reiknað með frekari rannsóknarborunum vegna fyrirhugaðra framkvæmda, að sögn Hreins Haraldssonar vegamálastjóra.  

"Verið er að vinna úr þeim upplýsingum sem fengust úr borununum og er lítið hægt að segja um árangurinn áður en það verk er komið lengra en jarðfræðin virðist nokkuð flókin. Það var svo sem vitað fyrir, og þess vegna var farið í þessar viðbótar rannsóknir til að reyna að fá gleggri mynd af jarðfræðilegum aðstæðum," segir Hreinn.
Eins og fram hefur komið stendur til að stofna hlutafélag um framkvæmdirnar með aðkomu Greiðar leiðar ehf og Vegagerðinnar. "Ennþá standa yfir viðræður um fjármögnun, þ.e. um lánsfé frá lífeyrissjóðum, og hlutafélagið verður ekki formlega sett á laggirnar fyrr en sér fyrir endann á þeim," segir Hreinn.

Nýjast