Loka þarf fyrir heita vatnið í hluta Lundahverfis

Í nótt gaf sig hitaveitulögn á gatnamótum Skógarlundar og Dalsbrautar á Akureyri.  Nauðsynlegt er að fara þegar af stað í viðgerð á lögninni sem þýðir að taka þarf vatnið af í hluta Lundahverfis.

Miklar framkvæmdir hafa verið á þessu svæði og líkur til þess að hitaveitulögnin hafi orðið fyrir hnjaski af þeim sökum.

Svæðið sem lokunin nær til má sjá á myndinni. Lokað var fyrir heita vatnið um kl. 11:00 og gert er ráð fyrir að lokað verði fram eftir degi. 

Nýjast