Leitað eftir kyngreindum upplýsingum hjá KA og Þór

Í samræmi við jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar er starfandi vinnuhópur um tilraunaverkefni í kynjasamþættingu. Í hópnum sitja starfsmenn bæjarins sem sóttu námskeið um kynjasamþættingu fyrr á árinu. Á síðasta fundi samfélags- og mannréttindaráðs var lagður fram spurningalisti sem hópurinn hefur útbúið og áætlað er að senda forsvarsfólki íþróttafélaganna KA og Þórs.  

Tilgangurinn er annars vegar að safna kyngreindum upplýsingum og hins vegar að móta fyrirmynd að kynjuðum úttektum sem stefnt er að gera hjá þeim félagasamtökum sem njóta styrkja frá Akureyrarbæ. Samfélags- og mannréttindaráð samþykkti listann og óskar eftir því við íþróttaráð að það fjalli einnig um hann. Ráðið telur mikilvægt að boðið verði upp á fleiri námskeið um kynjasamþættingu fyrir starfsfólk og kjörna fulltrúa bæjarins og hvetur karlmenn sérstaklega til þátttöku.

Nýjast