Laun í vinnuskólanum hækka um 5% milli ára

Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var rætt um laun í Vinnskóla Akureyrarbæjar. Bæjarráð samþykkti að hækka laun unglinga í vinnuskólanum um 5% frá fyrra ári. Einnig var sú breyting gerð frá fyrra ári, að í stað þess að 10,17% orlof verði innifalið í tímakaupi er 10,17% orlof greitt til viðbótar við tímakaup. Launin verða sem hér segir: 8. bekkur (14 ára) kr. 356, 9. bekkur (15 ára) kr. 407 og 10. bekkur (16 ára) kr. 536. Sigurður Guðmundsson A-lista lét bóka að hann teldi launin of lág og að þörf færi á frekari hækkun.

 

Nýjast