Í báðum spurningum voru þeir aðeins spurðir sem eiga aðild að stéttarfélögum. Fyrri spurningin hljóðaði þannig: Nú standa yfir viðræður um nýja kjarasamninga. Hvort ertu hlynntari því að verkalýðshreyfingin leggi áherslu á sambærilegar launahækkanir fyrir alla, eða meiri launahækkanir til þeirra sem starfa í útflutningsgreinunum, sem njóta nú góðs af gengi krónunnar? 94% sögðust vilja sambærilegar launahækkanir fyrir alla en 6% vildu að þeir fái meiri launahækkanir sem starfa í útflutningsgreinunum.
Hin spurningin snéri að því hvað verkalýðshreyfingin ætti að leggja mesta áherslu á í kjaraviðræðunum. 19% vildu beinar launahækkanir, 48% að kaupmáttur yrði tryggður og 24% að áherslan væri á atvinnuöryggi.
Félagsvísindastofnun Háskólans gerði skoðanakönnunina fyrir Alþýðusamband Íslands. Úrtakið var 1200 manna slembiúrtak úr þjóðskrá. Könnunin var gerð í gegnum síma dagana 5.-16 febrúar 2011. Nettósvarhlutafall var 62,9%. Þetta kemur fram á vef ASÍ.