Guðmundur Steingrímsson, þingmaður, sagði í fréttum Ríkisútvarpsins í gær, að áhugi væri á frjálslyndu framboði á landsvísu og að rætt hafi verið við fjölmarga um allt land um að taka þátt í slíku framboði. Guðmundur upplýsti að hann undirbúi nýtt frjálslynt framboð á landsvísu fyrir næstu þingkosningar ásamt, meðal annarra, aðstandendum Besta flokksins. En það eru mun fleiri sem komið hafa að þeirri vinnu, segir Guðmundur, meðal annars fulltrúar staðbundinna, óháðra framboða í fjölmörgum sveitarfélögum. Í frétt RÚV kom einnig fram að fréttastofan hefði heimildir fyrir því að rætt verið við fulltrúa L-listans á Akureyri og Kópavogslistans.