Kynning á einkennismerki fyrir 150 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar

Á morgun, þriðjudag 6. desember kl. 13.00, verður kynning í Myndlistaskólanum á Akureyri á merki afmælisársins en Akureyrarkaupstaður fagnar 150 ára afmæli sínu á næsta ári.  Fyrir valinu varð merki Sigrúnar Bjargar Aradóttur, nemanda á þriðja ári við Myndlistaskólann.  Efnt var til hönnunarsamkeppni á vegum Akureyrarbæjar í samstarfi við skólann nú í haust og verkefnið lagt fyrir 22 nemendur við listhönnunardeild.

Nemendurnir eru á fyrsta, öðru og þriðja ári. Leiðbeinandi nemenda í verkefninu var Þórhallur Kristjánsson. Að mati dómnefndar uppfyllir merki Sigrúnar allar kröfur sem gerðar eru til tækifærismerkis sem þessa. Þannig býður uppbygging merkisins upp á ólíkar birtingarmyndir, t.d. í smækkaðri framsetningu á minjagripum.  Í greinargerð sem fylgir vinningstillögunni segir hönnuðurinn m.a.:

„Merkið er byggt á merki Akureyrarkaupstaðar með tilvísun í örninn.“ Það er álit dómnefndar að þessi tilvísun gangi fyllilega upp. Sumpart leitar höfundurinn fanga í fortíðinni sem núverandi byggðamerki byggir á og um leið er framsetningin framsækin og í takt við núið.

Myndmál merkisins er sterkt og tengingin við Akureyri skýr; áberandi form í merkinu eru vængir arnarins sem teygjast til himins en eru um leið umfaðmandi.  Með því að rjúfa merkið í nokkur form, þá myndar bilið á milli þeirra töluna 150.   Þetta gerir að verkum að merkið stendur vel fyrir sínu án stuðnings af letri, sem sannarlega er styrkur.

Dómnefndina skipuðu: Pétur Bolli Jóhannesson, skipulags- og byggingarfulltrúi Akureyrarbæjar, Bryndís Óskarsdóttir, grafískur hönnuður, Guðrún Harpa Örvarsdóttir, formaður Myndlistarfélagsins á Akureyri, Helgi Vilberg, skólastjóri Myndlistaskólans á Akureyri, Arnfríður Arnardóttir, myndlistarmaður og kennari og Þórhallur Kristjánsson, grafískur hönnuður. 

Allar tillögurnar verða til sýnis í Myndlistaskólanum, segir í fréttatilkynningu.

Nýjast