Kvartað undan hávaða frá veitinga- og skemmti- stöðum í miðbænum

Miðbærinn á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.
Miðbærinn á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.

Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun, var tekið fyrir erindi frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra þar sem óskað er eftir viðbrögðum Akureyrarbæjar við lið í fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis frá því í haust og er svohljóðandi: “Kvartanir hafa borist frá íbúum í miðbæ Akureyrarbæjar vegna hávaða um kvöld og nætur frá veitinga- og skemmtistöðum á svæðinu (röskun á nætursvefni). Vandinn virðist að verulegu leyti vera til kominn vegna háreysti frá fólki sem er á leið á milli staða á svæðinu og einnig vegna dvalar fólks utandyra á reykingasvæðum veitinga- og skemmtistaða. Heilbrigðisnefnd mælist til þess við Akureyrarbæ að komið verði til móts við sjónarmið íbúa með því að stytta afgreiðslutíma veitinga- og skemmtistaða í miðbæ Akureyrar og með því að efla löggæslu í miðbæ Akureyrarbæjar.”

Fram kemur í bókun bæjarráðs, að í gildi sé lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarkaupstað, sem endurskoðuð var síðast 2009 og samþykkt í bæjarstjórn 3. febrúar 2009 og staðfest af ráðherra 11. júní 2009. Þar sé m.a. fjallað um almennar velsæmisreglur og ónæði á almannafæri. Þar er einnig ákvæði um opnunartíma veitingarhúsa og almennt skemmtanahald. Ekki sé gert ráð fyrir að lögreglusamþykkt verði endurskoðuð á næstu misserum. Þá bendir bæjarráð á að Akureyrarbær fer ekki með löggæslu í bænum.

 

Nýjast