Kristinn G. opnar sýninguna Litbrekkur í Grófargili í dag

Litbrekkur nefnir Kristinn G. Jóhannsson sýningu sína sem hann opnar í Grófargili í dag, laugardaginn 15.janúar kl. 15:00. Kristinn hefur sýnt oft og víða. Hann efndi til fyrstu sýningar sinnar á Akureyri 1954 en sýndi fyrst í Reykjavík 1962 í Bogasal Þjóðminjasafnsins og sama ár tók hann fyrsta sinni  þátt í Haustsýningu FÍM í Listamanna- skálanum. Hann hefur einnig gert vatnslitamyndir í bækur og er skemmst að minnast mynda í nýjun útgáfum af "Nonnabókum" auk mynda í þjóðsögur s.s. Búkollu og Gilitrutt.  

"Ég er enn genginn í brekkurnar og ef einhvern tíma hafi mátt telja það til staðfestu og sem  einlægt samtal við átthagabrekkur sem voru og eru, kann nú að vera komið að lokum þessa könnunarleiðangurs sem , eins og mörg ykkar muna, hófst með sýningunni "Um Búðargil og brekkurnar"  og svo komu "Sumarbrekkur", "Haustbrekkur", "Vetrarbrekkur" og "Vorbrekkur". Ef til vill er nú nóg sótt í þetta yrkisefni og "Litbrekkur", þessar hér, verði síðasta erindi þessa bálks. Ég hefi einatt haldið því fram að málverk þarfnist ekki útskýringa eða orðavaðals en hefi svo sjálfur sett á langar romsur um þau, þvert á fullyrðingar mínar um þarfleysi þess. Nóg komið af því líka, en hér eru brekkurnar  og ráði nú hver í með sínum hætti."

Kristinn G. Jóhannsson (1936). Stúdent frá MA 1956 og lauk kennaraprófi 1962. Hann starfaði við kennslu og skólastjórn á Patreksfirði, Ólafsfirði og Akureyri í tæpa fjóra áratugi en hefur látið af þeim störfum.  Nam myndlist á Akureyri, í  Reykjavík og Edinburgh College of Art í Skotlandi.

Nýjast