Eftir að kjörskrá hefur verið lögð fram liggur hún frammi á almennum skrifstofutíma til kjördags. Staðfest eftirrit af kjörskrá má hafa til að leggja fram. Þeim sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er bent á að senda þær hlutaðeigandi sveitarstjórn. Athygli er vakin á því að sveitarstjórn getur allt fram á kjördag gert leiðréttingar á kjörskrá, ef við á.
Upplýsingavefurinn kosning.is
Á kosningavef innanríkisráðuneytisins, kosning.is, er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar, svo sem leiðbeiningar til kjósenda um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar, kosningarrétt, atkvæðagreiðslu utan kjörfundar, táknmálsfrétt o.fl. Þá geta kjósendur nú kannað á vefnum hvar þeir eru á kjörskrá. Með því að slá inn kennitölu kjósanda kemur upp nafn hans, lögheimili og sveitarfélag. Reykvíkingar og íbúar nokkurra stærri sveitarfélaga í landinu fá einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild.
Sérprentun laga nr. 13/2011 send á hvert heimili
Innanríkisráðuneytinu ber að enda öllum heimilum í landinu sérprentun laganna sem kosið er um í þjóðaratkvæðagreiðslunni 9. apríl næstkomandi. Dreifing sérprentunarinnar hefst í dag, mánudaginn 28. mars, en það er Íslandspóstur sem annast dreifinguna fyrir hönd innanríkisráðuneytisins. Í sérprentuninni er vakin athygli á því að á vefsíðu Alþingis, althingi.is, undir dálkinum Efni um Icesave, er að finna frumvarpið sem varð að lögum nr. 13/2011 ásamt öllum skjölum er varða meðferð þess. Þá er ennfremur vísað á vefinn kosning.is, þar sem upplýsingar um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar er að finna. Einnig er í bæklingnum vísað á kynningarvefinn thjodaratkvaedi.is, en þar er finna kynningu Lagstofnunar Háskóla Íslands á Icesave-samningnum ásamt upplýsingum um vefslóðir með mismunandi sjónarmiðum.
Hafi sérprentun laganna ekki borist þann 30. mars má hafa samband við þjónustufulltrúa með netsamtali, senda tölvupóst á postur@postur.is eða hafa samband við þjónustuver í síma 580 1200.
Kynningarefni unnið af Lagstofnun Háskóla Íslands
Lagastofnun Háskóla Íslands vinnur að gerð hlutlauss kynningarefnis vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar í samræmi við ályktun Alþingis þar að lútandi. Á vefsíðunni thjodaratkvaedi.is segir að vefurinn verði opnaður í dag, mánudag. og að kynningarbæklingi Lagstofnunar verði dreift inn á hvert heimili mánudaginn 4. apríl og þriðjudaginn 5. apríl. Þar kemur einnig fram að ýmsir áhugamenn um málefni þjóðaratkvæðagreiðslunnar 9. apríl hafa sett á laggirnar vefsíður til að koma á framfæri efni því tengdu og taka þátt í þjóðmálaumræðunni. Er bent á að ábendingar um slíkar vefsíður séu vel þegnar á veffangið thjodaratkvaedi@thjodaratkvaedi.is til að unnt sé að vísa á þær af kynningarvef Lagastofnunar þannig að mismunandi sjónarmið fái að njóta sín.