Kjörið tækifæri til að upplifa töfra klassískrar tónlistar

Píanóleikarinn Peter Máté.
Píanóleikarinn Peter Máté.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands býður upp á glæsilega efnisskrá á tónleikum í Hofi í dag, sunnudaginn 12. febrúar  kl. 16.00, þar sem ein vinsælasta og þekktasta sinfónía Beethovens, Sinfónía nr. 7, verður flutt. Sinfónían er rómuð  fyrir kraft og fegurð, er full glaðværðar og danshrynjanda. Hún hefur verið vinsæl í ýmsum kvikmyndum en nýlegt dæmi þess er í verðlaunamyndinni; The king´s speech. Á efnisskránni er einnig frumflutningur á nýju íslensku tónverki eftir Jón Ásgeirsson tónskáld. Um er að ræða píanókonsert þar sem einleikarinn Peter Máté, einn fremsti píanóleikari landsins, stígur á stokk en Jón samdi verkið sérstaklega fyrir hann. Jón hefur lengi fylgst með ferli Peters og segir m.a. um hann: “Peter er frábær píanóleikari, hann er  einstaklega næmur á blæbrigði og hefur mjög góða og eftirtektarverða tækni.”

Fingalshellir, eftir Mendelssohn er einnig á efnisskránni. Verkið ætti að höfða vel til Íslendinga en í framvindu þess getur að heyra enduróm af hljóðum sjófugla, vindgnauði, sjávarnið og veðurofsa í margbreytilegum myndum. Brynja Harðardóttir framkvæmdastjóri SN, segir að tónlistarfólk og aðrir listamenn tali gjarnan um hversu mikil nálægð skapast við áheyrendur í Hamraborginni í Hofi og hversu mikilvæg hún sé til að efla stemmningu og hughrif. Á tónleikunum í dag gefst fólki kjörið tækifæri til að upplifa töfra klassískrar tónlistar.

Nýjast