Á fundi samninganefndar Starfsgreinasambands Íslands(SGS) f.h. aðildarfélaga sinna annarra en Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins
Hlífar og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis sem haldinn var í dag, var samþykkt að vísa kjaradeilu SGS við
Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara.
Að mati samninganefndarinnar hefur hægt miðað og því sé mikilvægt að þrýsta á um markvissari viðræður sem leiddar
verði af ríkissáttasemjara ef það gæti orðið til þess að skila kjarasamningi aðila í höfn frekar fyrr en síðar.
Þetta kemur fram á vef Einingar-Iðju.