Forsenda fyrir þátttöku Kennarasambandsins í þeirri vinnu er hins vegar sú að vinnan verði unnin á ábyrgð ríkissáttasemjara og undir verkstjórn hans. Kennarasamband Íslands er fylgjandi samstarfi KÍ, BHM og BSRB um sameiginleg mál opinberra starfsmanna og mun leggja sitt af mörkum til að styrkja það samstarf. Miðað við núverandi aðstæður telur Kennarasamband Íslands engar forsendur fyrir því að gera kjarasamninga til lengri tíma en eins árs. Þessi skoðun er byggð á þeirri miklu óvissu sem nú ríkir varðandi ýmis atriði sem varða kjör félagsmanna KÍ. Nægir hér að nefna óvissu um fjárlög næstu ára, óvissu um fjárhagsáætlanir sveitarfélaga og ekki síst óvissu um þróun verðlags á næstu misserum. Þá er starfsöryggi margra í uppnámi vegna óvissu um framtíð skóla þar sem áform eru uppi um sameiningu og/eða niðurlagningu þeirra.
Kennarasamband Íslands leggur áherslu á að sjálfstæður samningsréttur félaga verði virtur í komandi kjaraviðræðum. Nauðsynlegt er að strax verði hafist handa við kjarasamningagerð þannig að gerð nýrra kjarasamninga verði lokið sem allra fyrst enda hafa flest félög innan KÍ verið samningslaus vel á annað ár, segir í yfirlýsingu sambandsins.