Akureyri og HK mætast í hreinum úrslitaleik í kvöld í Íþróttahöllinni á Akureyri kl. 19:30 um hvort liðið kemst í úrslit í N1-deild karla í handbolta. HK jafnaði rimmu liðanna í 1:1 með sannfærandi sigri sl. laugardag á heimavelli og tryggði sér oddaleik. Sama er upp á teningnum í hinni undanúrslitarimmunni þar sem FH og Fram mætast í Kaplakrika í oddaleik og því spennandi kvöld framundan í handboltanum. Sævar Árnason, aðstoðarþjálfari Akureyrar, segir ekki annað koma til greina en að að sýna sitt rétta andlit í kvöld.
„Þetta fór heldur betur ekki eins og við ætluðum okkur á laugardaginn og núna er bara staðan þannig að það er hreinn úrslitaleikur. Þegar það er svona stutt á milli leikja að þá tökum við meiri taktískar æfingar og við fórum yfir síðasta leik í gær, bæði varnarlega og sóknarlega og hvað við ætlum að gera betur í kvöld,” segir Sævar.
Hann segir að ef til vill hafi leikmenn Akureyrar verið með það í huganum að liðið ætti heimaleikinn inni í kvöld, hvernig sem færi á laugardaginn og það hafi haft áhrif á spilamennsku liðsins.
„Ég held að það hljóti bara að vera. Það sást bara hvað vantaði mikið upp á í okkar leik. Við vorum ekkert að gera neitt hundrað prósent og það vantaði allsstaðar eitthvað upp á hjá okkur. Það kemur bara í ljós úr hverju menn eru gerðir í kvöld. Hvort menn ætli sér alla leið eða ekki,” segir Sævar.