Jón Oddgeir Guðmundsson, sem veitti gjöfinni viðtöku, segir að þörf fyrir aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar sé alltaf að aukast og þetta framlag KEA komi því sannarlega að góðum notum. Jón Oddgeir segir að á annað hundrað manns í Eyjafirði og Þingeyjarsveit leiti um þessar mundir eftir aðstoð hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, auk þess hafi stofnunin samband við einstaklinga sem hún telur hjálpar þurfi og bjóði fram aðstoð sína.