Kári Steinn og Arndís Ýr Íslandsmeistarar í 10 km götuhlaupi

Alls tóku um 170 manns þátt í Akureyrarhlaupinu í gærkvöld.
Alls tóku um 170 manns þátt í Akureyrarhlaupinu í gærkvöld.

Langhlauparinn Kári Steinn Karlsson náði ekki að bæta Íslandsmetið í 10 km hlaupi, í Akureyrarhlaupi Íslenskra verðbréfa og Átaks í gærkvöld, eins og hann stefndi að, en hann var þó grátlega nærri því. Hann kom fyrstur í mark á 30:18 mín. en 29 ára gamalt Íslandsmet Jóns Diðrikssonar er 30:11 mín. Alls tóku um 170 hlaupar þátt í Akureyrarhlaupinu og gátu þátttakendur hlaupið 5 km, 10 km eða hálft maraþon, sem er 21 km. Aðstæður voru góðar en þó var nokkur mótvindur frá Akureyrarflugvelli norður að Hofi, þar sem hlaupið hófst og endaði.

Annar karla í 10 km hlaupinu, varð Þorbergur Ingi Jónsson, sem hljóp á 32:14 mín., sem er hans besti tími og áttundi besti tími íslendings í 10 km götuhlaupi. Þriðji varð Ármann Eydal Albertsson á 33:40 mín. Í kvennaflokki sigraði Arndís Ýr Hafþórsdóttir á 36:55 mín., sem er þriðji besti tími íslenskrar konu frá upphafi. Í öðru sæti var Rannveig Oddsdóttir á 37:11 mín., sem er sjötti besti tími íslenskrar konu og í þriðja sæti var Sigrún Björk Sigurðardóttir á 42:06 mín. Kári Steinn og Arndís Ýr eru Íslandsmeistarar í 10 km götuhlaupi. Einnig var keppt í 5 km hlaupi og hálfmaraþoni. Í 5 km hlaupi karla sigraði Ívar Sigurbjörnsson á 18:58 mín og í kvennaflokki sigraði Selma Sigurðardóttir Malmquist á 21:33 mín. Í hálfmaraþoni karla sigraði Arnar Pétursson á 1:13:54 og í kvennaflokki sigraði Ásdís Káradóttir á 1:36:54. Meðfylgjandi eru myndir frá hlaupinu.

Nýjast