Kannabisræktun á Akureyri

Lögreglan á Akureyri stöðvaði í gærkvöld kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi á Akureyri. Hald var lagt á 6 kannabisplöntur, um tíu grömm af marihuana og tæki og tól til ræktunar. Par á þrítugsaldri var handtekið vegna málsins en sleppt að loknum yfirheyrslum og telst málið upplýst. Lögreglan vill minna á fíkniefnasímann 800-5005 þar sem koma má á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál.

Nýjast