Kalla eftir ábendingum um hættustaði í Norðurþingi

Húsavík: Mynd/HBH.
Húsavík: Mynd/HBH.

Norðurþing vinnur að nýrri umferðaröryggisáætlun sem á að nýtast við að forgangsraða úrbótum í sveitarfélaginu. Íbúasamráð stendur nú yfir og geta íbúar komið á framfæri ábendingum og athugasemdum um umferðaröryggi til 22. október. Sérstaklega er leitað eftir sjónarmiðum grunnskólanemenda með könnun sem þeir svara á skólatíma. Gert er ráð fyrir að áætlunin verði tilbúin fyrir næsta sumar.

Að sögn Elvars Árna Lund, sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs Norðurþings, hefur verkefnið verið á áætlun um nokkurt skeið. Sveitarfélagið fékk verkfræðistofuna Eflu til að halda utan um vinnuna í september, en stofan hefur unnið sambærilegar áætlanir fyrir mörg sveitarfélög og nýlega lokið slíkri vinnu í nágrannasveitarfélögum Norðurþings.

Arna Kristjánsdóttir, samgönguverkfræðingur hjá Eflu, stýrir verkefninu en Elvar er tengiliður sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að vinnan taki um átta mánuði.

Þátttaka íbúa mikilvæg

Arna leggur áherslu á að þátttaka íbúa sé mikilvæg við mótun áætlunarinnar. Samhliða almennu íbúasamráði sé unnið með grunnskólunum að því að afla upplýsinga frá börnum og ungmennum.

„Það samráð veitir okkur mikilvægar upplýsingar um upplifun barna og ungmenna af umferðaröryggi og hjálpar okkur að greina hvar helst er þörf á úrbótum,“ segir Arna.

Enn sé þó of snemmt að segja til um hvaða svæði eða málefni standi helst upp úr í ábendingum íbúa. Samráðið sé í gangi og greiningarvinnan á einstökum svæðum skammt á veg komin.

Einnig er verið að setja saman samráðshóp þar sem fólk með ólíka hagsmuni og sjónarmið kemur að borðinu. Gert er ráð fyrir að hópurinn hittist einu sinni til tvisvar á meðan á vinnunni stendur.

Í hópnum verða fulltrúar Vegagerðarinnar, Samgöngustofu, lögreglu og almenningssamgangna. Þá er gert ráð fyrir fulltrúum Borgarhólsskóla og Öxarfjarðarskóla, foreldraráðs, ungmennaráðs, eldri borgara, íþróttastarfs og ferðaþjónustu, auk fulltrúa Norðurþings á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn.

Elvar segir að ábendingum verði fylgt eftir eftir því sem mögulegt er. Markmiðið sé að áætlunin verði haldbær leiðarvísir um það sem þurfi að bæta og að úrbótum verði sinnt með skipulegum hætti.

„Fyrst verður lagað það sem brýnast er talið að þarfnist úrbóta,“ segir Elvar.

Stærri verkefni, sem krefjast meira fjármagns og mögulega samstarfs við Vegagerðina, verði sett inn á framkvæmdaáætlun.

Frestur til að taka þátt í íbúasamráðinu er til 22. október. Hér má komast inn á ábendingagáttina

Nýjast