Iðnaðarsafnið á Akureyri hefur fengið líkanið af Kaldbak EA 1 lánað og verður það til sýnis í sumar á safninu. Það var Aðalgeir Guðmundsson sem smíðaði líkanið um 1960. Iðnaðarsafnið er safn fyrir alla fjölskylduna og geymir muni sem tengjast iðnaði og iðnframleiðslu liðinna tíma. Allt frá smjörlíkisgerðarvélum, prentvélum og rennibekkjum til saumavéla og áhöldum til úrsmíða. Fjöldi tækja og véla úr gömlu verksmiðjunum sem notaðar voru til framleiðslu á vörum, þar á meðal Saxbauta, Santos kaffi og Flóru smjörlíki, auk allskyns nytjahluta og iðnvarnings. Á efri hæð safnsins er sýning á hinni víðtæku fata- og skóframleiðslu sem fram fór á Akureyri á liðinni öld. Hver man ekki eftir náttkjólunum frá Íris, Duffys gallabuxum, Skinnu mokkajökkum og Iðunnar skóm? Safnið er opið á laugardaginn frá kl. 14-16 en frá 1. júní og fram í miðjan september, verður safnið opið daglega frá kl. 10-17.