„Við erum bara brattir fyrir þennan leik. Þetta er fyrsti heimaleikurinn okkar og menn eru búnir að bíða spenntir,“ segir Ingvar Már Gíslason aðstoðarþjálfari KA.
„Það geta öll lið unnið alla í þessari deild og það skiptir engu máli hvort lið eru að spila á heimavelli eða útivelli, það er ekki hægt að ganga að neinu vísu,“ segir Ingvar, en nánar er rætt við hann í Vikudegi sem kom út í gær.