KA gerði góða ferð til Ólafsvíkur er liðið lagði topplið Víkings að velli með einu marki gegn engu, í 10. umferð 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu í kvöld. Það var David Disztl sem skoraði sigurmark KA á 54. mínútu. Matus Sandor markvörður KA átti stóran þátt í sigrnum, því hann gerði sér lítið fyrir og varði vítaspyrnu í uppbótartíma. Víkingur Ó heldur efsta sætinu á markatölu þrátt fyrir tapið en KA lyfti sér upp í 5. sæti deildarinnar.