KA tapaði gegn Þrótti Reykjavík, 1-2, er liðin mættust á Valbjarnarvelli í 1. deild karla í knattspyrnu í dag. Andri Gíslason kom heimamönnum yfir þegar stundafjórðungur var liðinn af leiknum en Davíð Rúnar Bjarnason jafnaði metin fyrir KA um miðjan síðari hálfleik. Það var svo Karl Brynjar Björnsson sem skoraði sigurmark leiksins á 72. mínútu. KA er því áfram með átta stig í níunda sæti deildarinnar en Þróttur R. hefur sjö stig og lyftir sér upp úr botnsætinu í það tíunda.
Þá var einnig leikið í Borgunarbikar kvenna í knattspyrnu í dag þar sem Þór/KA komst auðveldlega áfram í átta liða úrslit eftir 5-1 sigur gegn Keflavík á útivelli. Arna Sif Ásgrímsdóttir skoraði tvívegis fyrir Þór/KA og þær Þórhildur Ólafsdóttir, Tahnai Annis og Hafrún Olgeirsdóttir sitt markið hver.