Jafnréttisáætlun fyrir Hörgársveit hefur verið afgreidd

Jafnréttisáætlun fyrir Hörgársveit var nýlega afgreidd af sveitarstjórn en það var félagsmála- og jafnréttisnefnd sveitarfélagsins sem hafði veg og vanda af gerð hennar. Markmiðið með áætluninni er að stuðla að jafnri stöðu kvenna og karla í Hörgársveit. Jafnréttisáætlunin tekur til stjórnkerfis og starfsmanna sveitarfélagsins annars vegar og hins vegar til starfsemi og þjónustu sem stofnanir sveitarfélagsins veita íbúum þess.  

Leitast skal við að flétta jafnréttissjónarmið inn í starfsemi sveitarfélagsins og að öll stefnumótunarvinna hafi kynjasamþættingu að leiðarljósi. Jafnréttisáætlun Hörgársveitar byggir á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Í þeim lögum er kveðið á um að sveitarfélög skuli skipa jafnréttisnefnd og gera jafnréttisáætlun.

Nýjast