Á síðasta fundi íþróttaráðs Akureyrarbæjar var tekið fyrir erindi Siglingaklúbbsins Nökkva þar sem óskað er
eftir styrk að upphæð kr. 1.000.000 til kaupa á nýjum björgunarbáti fyrir starfsemi félagsins við Höepfnersbryggju.
Íþróttaráð telur nauðsynlegt að bæta öryggismál Siglingaklúbbsins Nökkva og samþykkti fyrir sitt leyti styrk að
upphæð kr. 1.000.000 til verkefnisins. Íþróttaráð vísaði erindinu til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.