Íslensk framleiðsla á stærri og sterkari snjóþotu

Sigurbjörn Höskuldsson, eigandi Kaldbaksferða ehf. í Grýtubakkahreppi hefur hafið framleiðslu á eigin snjóþotu í samstarfi við Promens Sæplast á Dalvík og hann fékk á dögunum styrk frá Norðursportum vegna verkefnisins. Snjóþotan ber heitið Kaldbaksþotan, hún er stór en létt og níðsterk.  

Kaldbaksferðir bjóða upp á ferðir á Kaldbak með snjóstroðurunum en í flestum tilfellum rennir fólk sér niður aftur eða gengur. "Við erum að fara upp með skíða- og brettafólk, gönguhópa og einnig fjölskyldufólk. Þá kom þetta upp að það þyrfti að gera eitthvað, því undantekningarlaust vill fólk fara niður aftur með öðrum hætti en að sitja í troðaranum. Við fórum því út í þessa framleiðslu á snjóþotunni, sem hefur virkað mjög vel. Snjóþotan er stór, eða 120 cm á lengd og kosturinn við að hana er að fullorðnir geta verið með börnin fyrir framan sig á leiðinni niður."

Sigurbjörn segir að draumurinn sé að fá sem flesta til að kaupa sér svona snjóþotur, enda henti þær vel til margra hluta. "Skíðagönguhópar hafa sýnt þotunni mikinn áhuga, enda er þægilegt fyrir skíðagöngufólk að draga hana á eftir sér. Þá hentar hún vel í sumarbústaði og ætti að vera staðalbúnaður á slíkum stöðum. Einnig erum við að horfa til útflutnings, enda staflast snjóþotan vel og það er því auðvelt að flytja mikið magn af henni. Þá er snjóþotan í sölu hjá Skíðaþjónustunni á Akureyri og hún seldist nokkuð fyrir jólin," segir Sigurbjörn.

Fyrirtækið Kaldbaksferðir var stofnað árið 1998 og hefur starfað óslitið síðan. Fyrstu ferðirnar upp á Kaldbak á þessum vetri voru farnar á dögunum. Sigurbjörn segir að svo verði haldið áfram eins og aðstæður leyfa. "Við höfum verið að enda þetta í byrjun í júní, enda erum við komnir með veg svo hátt upp í fjallið, eða upp í 430 metra hæð. Ég fór síðustu ferðina upp í fyrra þann 9. júní."

Aðspurður um eftirspurn í þessar ferðir,  segir Sigurbjörn að það hafi verið stígandi í þessu. "Þetta eru að lang mestu leyti Íslendingar og það hefur gengið frekar illa að ná til útlendinga og þá fyrst og fremst vegna þess hversu lítið er um að þeir ferðist saman í hópum. Þessi lausatrafík sem er að koma norður er ekkert sérlega viðráðanleg fyrir okkur. Við höfum verið að miða við 10 manns sem lágmarksfjölda í hverja ferð, þannig að hægt sé að reka þetta með arðbærum hætti," sagði Sigurbjörn.

Nýjast