Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí tapaði sínum fyrsta leik á HM í 4. deild sem fram fer hér á landi og hófst í gær. Ísland mætti Nýja-Sjálandi og tapaði 1:3 en allir leikirnir fara fram í Skautahöllinni í Laugardal.
Birna Baldursdóttir kom Íslandi yfir en Nýja-Sjáland svaraði með þremur mörkum frá Casey Redman, Emmu Gray og Ashley Cunningham.
Í hinni viðureigninni í gær sigraði Suður-Kórea lið Suður-Afríku 6:0 en auk þessarar liða leika Rúmenar einnig á mótinu og mæta Suður-Afríku í eina leik dagsins.
Næsti leikur Íslands er gegn Rúmeníu á þriðjudaginn kl. 20:00.
Upplýsingar um markaskorara voru fengnir á mbl.is.