Icelandair Hótel Akureyri bætir við 37 herbergjum

Með nýju viðbótinni eru herbergin á Icelandair Hótel Akureyri orðin 100.
Með nýju viðbótinni eru herbergin á Icelandair Hótel Akureyri orðin 100.

Nú um nýliðin mánaðamót voru tekin í notkun 37 ný herbergi á Icelandair Hótel Akureyri og eru þau því alls orðin 100, en þegar hótelið var opnað í byrjun júní í fyrra voru þar 63 herbergi.  Meðal nýjunga nú er svíta og stór fjölskylduherbergi. Öll herbergin eru björt, innréttuð í nútímalegum stíl þar sem íslensk list og hönnun fær að njóta sín. Á hótelinu er jafnframt veitingastaður og bar sem er nefndur „stofa 14” og þykir vera einn glæsilegasti bar á Norðurlandi. Hótelgarðurinn er í notkun allt árið en hann hlaut verðlaun frá Akureyrarbæ fyrir fallegustu lóðina. Sigrún Björk Jakobsdóttir hótelstjóri á Icelandair Hótel Akureyri segir að fyrsta árið hafi gengið vel og raunar vonum framar.  „Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og fyrsta árið hefur í heildina gengið mjög vel,“ segir Sigrún Björk, en í vetur var t.d. mikið um Breta í hópi gesta, þeir voru hér á ferðinni í svonefndum Norðurljósaferðum sem seldust vel á liðnum vetri.  Framhald verði á Norðurljósaferðum Breta norður í landi næsta vetur.

„Nú hefur hótelið stækkað umtalsvert, um 37 herbergi og útlitið er gott, ekki annað að sjá en gott ferðasumar sé í vændum og bókanir hjá okkur eru ágætar,“ segir Sigrún Björk.  Hún segir að sú staðreynd að verið sér að bæta við herbergjum á hótelinu sé merki um að á Norðurlandi séu mörg vannýtt tækifæri í ferðaþjónustu,“ segir hún

Hvað næsta vetur varðar er Sigrún Björk sömuleiðis bjartsýn og nefnir að bókanir í norðurljósferðir frá Bandaríkjunum séu góðar. Icelandair hafi farið í mikið söluátak við að kynna Norðurland og Akureyri að vetri til og muni það skila sér vel næsta vetur.  „Það er ljóst að erlendir ferðamenn verða fjölmargir á Akureyri á vetrarmánuðum og því mikilvægt að mínu mati að þeir aðilar sem sjá um afþreygingu taki vel við sér og bjóði gott úrval ferða og skemmtunar næsta vetur,“ segir Sigrún Björk.

 

Nýjast