Hópslagsmál og líkamsárás á Akureyri

Mikill erill var í miðbæ Akureyrar í nótt. Mynd: Hörður Geirsson.
Mikill erill var í miðbæ Akureyrar í nótt. Mynd: Hörður Geirsson.

Mikill erill var hjá lögreglunni á Akureyri í gærkvöld og í nótt  en töluverður fjöldi fólks er samankominn í bænum vegna Bíladaga. Sex voru fluttir á slysadeild vegna líkamsmeiðinga,  fimm af lögreglu eftir hópslagsmál í miðbænum og einn með sjúkrabifreið eftir líkamsárás í heimahúsi. Þá ruddust þrír menn inn á heimili á Akureyri og lömdu húsráðanda. Tengdist það deilum á milli aðila að sögn lögreglu en húsráðandi slapp með minniháttar meiðsli. Tveir voru teknir fyrir ölvun við akstur en annar þeirra ók á staur í miðbænum og utan í bifreið.

Þá voru tveir handteknir eftir að hafa sparkað og skemmt bifreið á bifreiðastæði í miðbænum. Tveir ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur innanbæjar á Akureyri en annar þeirra var á mótorhjóli og mældist á 93 km/klst þar sem hámarkshraði er 50. Nokkrar tilkynningar og afskipti af aðfinnsluverðu aksturslagi ökumanna komu einnig upp. 

 

Nýjast