07. desember, 2010 - 09:27
Góðar fréttir berast af Helgu Sigríði Sigurðardóttur, tólf ára stúlku frá Akureyri, sem nú dvelur á
sjúkrahúsi í Gautaborg í Svíþjóð, eftir að hafa fengið hjartaáfall í sundtíma fyrir skömmu. Samkvæmt
upplýsingum sem Þórhildur Helga Þorleifsdóttir skólastjóri Lundarskóla sendi foreldrum barna í skólanum, var Helga
Sigríður tekin af öndunarvélinni í gærkvöld og vakin.
"Það gengur vel en hún er víst töluvert óáttuð og sagt er að það taki nokkra daga fyrir hana að jafna sig á
því," segir Þórhildur. Hún sagði það jafnframt aldeilis gott að fá þessar góðu fréttir núna í mesta
skammdeginu.