Hátt í þúsund manns njóta kvöldsins saman á árshátíð MA

Árshátíð Menntaskólans á Akureyri verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld. Hátíðin er glæsileg að vanda og er allur undirbúningur hennar í höndum nemenda sjálfra. Árshátíð MA er ein stærsta vímulausa hátíð sem haldin er árlega á Íslandi. Tugir nemenda vinna að skreytingum og margir hópar nemenda vinna að því að semja og æfa alls kyns skemmtiefni, hljóðfæraleik, dans, söng og leikatriði.

Aðrir hópar sjá um að skipuleggja borðhaldið, undirbúa veislusalinn og skreyta og tæknimenn sjá til þess að allir fái notið þess sem í boði verður. Öll þessi störf eru undir regnhlíf stjórnar Hugins, skólafélags MA. Formaður Hugins, Inspector Scholae, er Sindri Már Hannesson. Hátt í þúsund manns, nemendur, kennarar og starfsfólk, munu mæta í hátíðarbúningi í Höllina og njóta kvöldsins saman. Veitingahúsið Bautinn sér um matinn, en nemendur sjá um að þjóna til borðs, leika tónlist undir borðhaldi og flytja skemmtidagskrá. Kvöldinu lýkur svo með dansleik en þar leika hljómsveitirnar Of Monsters & Men og Skítamórall fyrir dansi í aðalsal, en Þuríður formaður og hásetarnir leika fyrir gömlum dönsum á efri hæðinni.

Hugtakið vímulaus hátíð þýðir í Menntaskólanum á Akureyri að þátttakendur hvorki neyta áfengis eða annarra vímugjafa á hátíðinni né koma þangað eftir að hafa neytt þeirra annars staðar. Nemendur MA telja það forréttindi að fá tækifæri til að njóta vímulausrar stórhátíðar þegar venjulegt er talið að fólk á þessum aldri skemmti sér með öðru móti.

 

Nýjast