Á hundrað ára afmæli Háskóli Íslands 2011 var tímamótunum fagnað víða um land með svokallaðri Háskólalest sem ferðaðist um landið við miklar vinsældir. Viðtökur voru með eindæmum góðar og fjölmenntu landsmenn á öllum aldri á viðburði Háskólalestarinnar. Vorið 2012 leggur lestin af stað á ný með fræði og fjör fyrir alla. Í maí verða heimsóttir fjórir áfangastaðir: Kirkjubæjarklaustur, Fjallabyggð, Grindavík og Ísafjörður.
Nú er komið að Fjallabyggð og verður Háskólalestin þar dagana 11. og 12.maí. Fyrri daginn sækja nemendur úr efstu deild grunnskóla Fjallabyggðar fjölbreytt námskeið í Háskóla unga fólksins en laugardaginn 12. maí verður litrík vísindaveisla fyrir alla aldurshópa. Vísindaveislan verður haldin í félagsheimilinu Tjarnarborg, Ólafsfirði og í íþróttahúsi grunnskólans kl. 12 til 16. Þar verður fjölmargt í boði; stjörnutjald, sýnitilraunir, eldorgel, tæki og tól, japönsk menning, jarðvísindi, þrautir og leikir, mælingar og pælingar. Auk þess verður Sprengjugengið landsfræga með tvær sýningar í Tjarnarborg kl 12:30 og 14:30.
Sýningar verða í Stjörnutjaldinu kl 13 til 16 á hálftíma fresti. Dagskrá Háskólalestarinnar er öllum opin, aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir, segir í fréttatilkynningu.