Ný hagspá hagdeildar ASÍ gerir ráð fyrir að verstu afleiðingar hrunsins séu nú að baki og framundan sé hægur bati í efnahagslífinu. Áhyggjuefni er hins vegar að efnahagsbatinn framundan er svo veikur að við blasir doði í hagkerfinu þar sem okkur tekst hvorki að endurheimta fyrri lífskjör né vinna bug á atvinnuleysinu á komandi árum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri spá hagdeildar ASÍ um horfur í efnahagsmálum á árunum 2011-2014.
Hagdeildin spáir því að landsframleiðsla aukist hægt á næstu árum, hagvöxtur verði 2,4% á yfirstandandi ári, um 1% á næsta ári, 2,7% á árinu 2013 og um 1,5% á árinu 2014. Hagur heimilanna vænkist heldur á næstu misserum þótt víða verði áfram þröngt í búi og atvinnuleysi áfram hátt. Samkvæmt spánni dregur úr atvinnuleysi á tímabilinu en það verður enn um 5% í lok spátímans. Útlit er fyrir litlar fjárfestingar í hagkerfinu á spátímanum. Mikil óvissa ríkir um framkvæmdir við álver í Helguvík og innanríkisráðherra hefur slegið út af borðinu allar áætlanir um aðgeraátak í vegamálum á Suðvesturlandi með sérstakri fjármögnun. Það er því ekki gert ráð fyrir þessum framkvæmdum í spánni. Þá valda erfiðleikar á erlendum fjármálamörkuðum aukinni óvissu varðandi fjárfestingar.
Eina leiðin fyrir okkur til að bæta lífskjör og draga úr atvinnuleysi er að auka verðmætasköpun þjóðarbúsins. Aðgerðir til að örva hagvöxt og skapa störf verða því miða að því að auka arðbæra fjárfestingu. Takist okkur að nýta þau tækifæri sem felst t.d í framkvæmdum í Helguvík og orku- og iðjuverum á Norðurlandi yki það hagvöxt áranna 2012-2014 um 3 prósentustig sem er ekki lítill ávinningur. Árleg verðmætasköpun yrði þá um 55 milljörðum meiri árið 2014 en ella auk þess sem það hefði veruleg jákvæð áhrifa á atvinnustigið. Þetta kemur fram á vef Einingar-Iðju.