Hádramatískt jafntefli á Akureyrarvelli

Mynd: Sævar Geir.
Mynd: Sævar Geir.

KA og Haukar gerðu hádramatískt jafntefli, 2-2, á Akureyrarvelli í kvöld í 1. deild karla í knattspyrnu. Það stefndi allt í sigur KA sem hafði 2-1 þegar komið var fram yfir venjulegan tíma en Benis Krasniqi jafnaði metin fyrir Hauka á uppbótartíma. KA-menn voru allt annað en sáttir í leikslok og vildu meina að boltinn hafi aldrei farið inn fyrir línuna. Ævar Ingi Jóhannesson og Gunnar Valur Gunnarsson komu KA í 2-0 en Björgvin Stefánsson og Benis skoruðu mörk gestanna. KA er í áttunda sæti með níu stig á meðan Haukar eru í þriðja sæti með 16 stig eftir níu umferðir.

KA fékk óskabyrjun í leiknum og Ævar Ingi  kom heimamönnum yfir strax á þriðju mínútu er hann slapp einn í gegn eftir sendingu frá David Disztl, lék á markvörð Hauka og renndi boltanum í autt markið. Fátt markvert gerðist það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og staðan 1-0 í leikhlé.

KA byrjaði síðari hálfleikinn af krafti og var í þrígang nálægt því að bæta við marki í upphafi hálfleiksins og björguðu Haukar m.a. á línu. Það var hins vegar á 68. mínútu að KA-menn komust í 2-0 er Gunnar Valur skallaði boltann í netið eftir sendingu frá Hallgrími Mar Steingrímssyni. Verðskulduð forysta heimamanna. Haukar létu ekki árar í bát og Björgvin Stefánsson minnkaði muninn fyrir gestina á 73. mínútu með skoti af stuttu færi. Bæði lið fengu fín færi til þess að bæta við marki en það var ekki fyrr en í uppbótartíma að jöfnunarmarkið kom og það skoraði sem fyrr segir Benis Krasniqi og tryggði Haukum stig.

Nýjast