Gunnar Þór og Sigurgeir með sigra á FIS-bikarmóti

Sigurgeir Halldórsson og Gunnar Þór Halldórsson frá SKA báru sigur úr bítum í karlaflokki á FIS/Bikarmóti í alpagreinum sem haldið var á Dalvík um helgina.

Sigurgeir sigraði í stórsvigi, Jakob Helgi Bjarnson varð annar og Ritthichai Khamsa-Ing þriðji, en báðir keppa þeir fyrir Dalvík. Gunnar Þór sigraði í svigi en þar hafnaði Sigurgeir í öðru sæti og Jón Gauti Ástvaldsson SKRR varð þriðji.

Í kvennaflokki sigraði Helga María Vilhjálmsdóttir frá SKRR í stórsvigi Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir SKRR varð í öðru sæti og Kolbrún Lilja Hjaltadóttir SKA í þriðja sæti. Í svigi kvenna sigraði Erla Guðný Helgadóttir og Helga María varð önnur, báðar frá SKRR. Í þriðja sæti varð svo Ísfirðingurinn Thelma Rut Jóhannsdóttir.

Nýjast