Guðlaugur: Ég er allur marinn

Varnarjaxlinn í liðið Akureyrar, Guðlaugur Arnarsson, fór á kostum í sigri norðanmanna gegn Val í kvöld í N1-deild karla í handbolta í Höllinni á Akureyri. Guðlaugur batt sterka vörn heimamanna saman en frábær fyrri hálfleikur lagði grunninn að 28:26 sigri norðanmanna. Hann var í leikslok réttilega valinn maður leiksins í liði Akureyrar og var sáttur með sigurinn, en þónokkuð lemstraður.

 

„Ég er allur marinn og að drepast í öxlinni,” sagði Guðlaugur, enda nokkur skotin sem hann fékk í sig í kvöld. „Fyrri hálfleikurinn var mjög flottur en ég er pínu svekktur með hvernig við komum inn í seinni hálfleikinn. Það er eins og við höfum haldið að við myndum bara klára þetta á hálfum hraða. Það vantaði mikið neistann í seinni hálfleik sem var í fyrri og við vorum að fá á okkur klaufaleg mörk.

Grunnurinn að sigrinum var hins vegar lagður í fyrri hálfleik þar sem allt gekk upp, góð vörn, góð sókn og mikið af hraðarupphlaupum. Við erum svolítið útaf í seinni hálfleik og þá riðlaðist spilið hjá okkur,” sagði Guðlaugur. Hann segir það bersýnilega hafa komið í ljós í seinni hálfleik að Akureyri hefur ekki leikið marga æfingaleiki í hléinu á deildinni.

„Við spiluðum tvo leiki í byrjun janúar en það er bara svona að búa út á landi. Svo erum við líka að missa menn í meiðsli,” sagði Guðlaugur í lokin.

 

Sturla: Sáttur við seinni hálfleikinn 

Sturla Ásgeirsson hjá Val átti fínan seinni hálfleik líkt og aðrir liðsfélagar hans. Hann sagði það erfitt að koma til baka á sterkum útivelli, en Valur var sjö mörkum undir í hálfleik.

„Fyrri hálfleikurinn var skelfilegur af okkar hálfu og það er erfitt að vinna upp sjö mörk gegn Akureyri á heimavelli,” sagði Sturla eftir leik. Hann var þó sáttur með seinni hálfleikinn þar sem Valsmenn rifu sig upp.

 

„Mér fannst við sýna frábæru baráttu í seinni hálfleik og við vorum ekki langt frá þessu. Við gerðum hins vegar heimskuleg mistök á lokakaflanum og þetta var bara orðið einum of erfitt. Við vorum greinilega ekki klárir í þetta en seinni hálfleikurinn var flottur og strákarnir eiga hrós skilið fyrir það,” sagði Sturla Ásgeirsson.

Nýjast