Glæsileg Sumartónleikaröð

Í júlímánuði  næstkomandi stendur Listvinafélag Akureyrarkirkju fyrir tónleikaröð sem nefnist Sumartónleikar í Akureyrarkirkju líkt og það hefur gert undanfarin ár. Þetta er næst elsta tónleikaröð á Íslandi og hefur hún verið haldin í vel á þriðja áratug. Tónleikaröðin í ár verur mjög glæsileg enda hefur stefnan alltaf verið að bjóða upp á fjölbreytta tónlist, flutta af framúrskarandi listafólki í því frábæra tónlistarhúsi sem Akureyrarkirkja er. Eftirtaldir flytjendur koma fram í sumar:

1. júlí: Hjörleifur Örn Jónsson slagverksleikari
Hjörleifur Örn er skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri en er einnig virkur sem slagverksleikari, bæði með ýmsum hljómsveitum sem og einleikari.

 8. júlí: Margrét Bóasdóttir sópransöngkona ásamt Chalumeaux-tríóinu
Margrét Bóasdóttir hefur starfað með klarínettutríóinu af og til allt frá stofnun þess árið 1990. Tríóið skipa þeir Kjartan Óskarsson, Sigurður Ingvi Snorrason og Ármann Helgason.

 15. júlí: Sigrún Magna og Eyþór Ingi spila fjórhent og fjórfætt á orgelið
Jafnaldrarnir Sigrún og Eyþór starfa hlið við hlið við Akureyrarkirkju, deila skrifstofu og skiptast á að spila við athafnir í kirkjunni en þau hafa aldrei spilað saman. Það verða eflaust átök á orgelbekknum á þessum tónleikum.

 22. júlí: Guðrún Óskarsdóttir semballeikari og Halla Steinunn Stefánsdóttir fiðluleikari
Halla Steinunn og Guðrún eru með fremstu barokktónlistarmönnum landsins. Fiðlan og semballinn passa afar vel saman og verður spennandi að heyra þessa fullkomnu samsetningu í hlýjum hljómburði Akureyrarkirkju.

 29.  júlí: Trio Bruun frá Danmörku
Góðir gestir frá Danmörku. Tríóið er skipað Steffen Bruun, bassasöngvara, Hetna Regitze Bruun, sópransöngkonu og Philip Schmidt-Madsen, orgelleikara.

Allir tónleikarnir hefjast kl. 17 og aðgangur er ókeypis á þá alla, nema á tónleikana 29. júlí er aðgangseyrir 1500 kr.

Nýjast