Getur endað með stórslysi

„Þetta er hroðalegt ástand,“ segir Málfríður Þórðardóttir ljósmóðir á Akureyri. Eftir að fæðingardeildinni var lokað á Sauðárkróki fyrir um þremur árum hefur færst í aukana að barnshafandi konur fæði á leið sinni til Akureyrar.

 Í síðustu viku kom barn í heiminn í sjúkrabíl í Öxnadalnum og þá fæddi kona nýverið barn á bílastæðinu í Varmahlíð. Í apríl sl. fæddi kona í miðju Dalsmynni á leið sinni frá Húsavík til Akureyrar.

 „Þessu verður að kippa í lag, við megum ekki bíða eftir því að eitthvað hræðlilegt gerist,“ segir Málfríður.

 Vegalengdin frá Sauðárkróki til Akureyrar er 120 km og tæpir 100 km eru frá Húsavík. Þeir sem koma frá Þórshöfn þurfa hins vegar að leggja á sig 250 km ferðalag.

 

throstur@vikudagur.is

 

Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags

Nýjast