„Gerist varla betra“

Sandra María Jessen
Sandra María Jessen

„Þetta var alveg geðveikt og gerist varla betra,“ segir knattspyrnukonan Sandra María Jessen, leikmaður Þórs/KA, sem fékk sannkallaða draumabyrjun í sínum fyrsta A-landsleik á dögunum. Sandra skoraði þriðja og síðasta mark Íslands í 3-0 sigri liðsins gegn Ungverjalandi á Laugardalsvelli í undankeppni EM en markið skoraði hún fjórum mínútum fyrir leikslok með sinni fyrstu snertingu.

Hún hafði komið inn á sem varamaður aðeins þremur mínútum áður. „Ég var smá stressuð þegar ég kom inn á en gleymdi því um leið og ég skoraði,“ segir Sandra. Þær Margrét Lára Viðarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir skoruðu fyrstu tvö mörk íslenska liðsins. Ísland mætir Búlgaríu á útivelli í dag en leikurinn hefst kl. 15:00 og er Sandra átján manna hópi íslenska liðsins. „Það væri gaman að fá spila í dag en maður verður bara að bíða og sjá,“ sagði Sandra.

Nýjast