Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kemur í dag

Alls eru 65 bókaðar skipakomur hjá Hafnarsamlagi Norðurland í sumar, fyrsta skipið leggst að Oddeyrarbryggju eftir hádegi  í dag , síðasta skipið er svo væntanlegt til Akureyrar 13. september. Skemmtiferðaskipið sem kemur í dag heitir Astor og er 20.606 brúttótonn. Farþegar eru 590. Á morgun kemur svo stærsta skemmtiferðaskip sumarsins, Adventure of the Seas. Skipið leggst að Oddeyrarbryggju í fyrramálið. Farþegar eru liðlega 3000. Á morgun kemur annað stórt skip til Akureyrar, MSC Magnifica. Það er 92.409 brúttólestir og farþegarnir eru um 2.500. Það verður því nóg að gera hjá fyrirtækjum sem þjónusta skemmtiferðaskipin.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast