Fyrsta Goðamót Þórs á árinu fer fram í Boganum um helgina, dagana 4.-6. febrúar. Mótið er nú haldið í 26. sinn og verða stelpurnar í 4. flokki í aðalhlutverki að þessu sinni.
Alls verða 37 lið frá 14 félögum á mótinu sem hefst kl. 16:30 á morgun, föstudag, og lýkur með verðlaunaafhendingu á sunnudaginn kl. 14:00.