Fyrsta flug Iceland Express milli Akureyrar og Kaupamannahafnar í dag

Akureyrarflugvöllur. Mynd: Hörður Geirsson.
Akureyrarflugvöllur. Mynd: Hörður Geirsson.

Beint áætlunarflug Iceland Express milli Akureyrar og Kaupamannahafnar hefst í dag. Fyrsta flugvélin fer frá Kaupmannahöfn klukkan 15:10 og lendir á Akureyri klukkan 16:25 og heldur þaðan aftur til Kaupmannahafnar klukkan 17:35. Í tilefni dagsins býður Iceland Express upp á hoppfargjald til Kaupmannahafnar í dag á aðeins 15.900 krónur með sköttum og gjöldum. Ferðaþjónustuaðilar, markaðasstofa Norðurlands og Flugklasi, samstarfsvettvangur ferðaþjónustunnar og opinberra aðila á Norðurlandi, hafa unnið mjög vel að kynningu á Akureyri og nærsveitum sem áfangastað og átt gott samstarf við Iceland Express. En markaðssamvinna sem þessi er mikilvæg til að efla nýja áfangastaði, segir í fréttatilkynningu.

Nýjast