Í kvöld, föstudagskvöld verða tónleikar á Græna hattinum með hljómsveit sem nýbúið er að blása lífi í að nýju, en það er Funkmaster 2000. Það eru vanir menn sem skipa bandið en þeir eru: Ómar Guðjónsson gítarleikari, Helgi Svavar Helgason trommari, Valdi Kolli bassaleikari og Hannes Helgason Fender Rhodes og Hammondleikari. Plata er í smíðum og það er allt að gerast hjá þessum snillingum. Tónleikarnir hefjast kl.22.00
Á morgun, laugardagskvöld er það flauelsbarkinn og ljúflingurinn Valdimar Guðmundsson sem syngur öll sín fallegu og vinsælu lög ásamt öðru sem hann kemur gestum á óvart með.Tríó Ómars Guðjónssonar leikur undir hjá honum. Tónleikarnir hefjast kl.22.00