Fundaröð SA um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn

Samtök atvinnulífsins efna til opinna funda á landsbyggðinni um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn dagana 9.-12. nóvember. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu, komandi kjarasamninga og svara fyrirspurnum. Stjórnendur og forsvarsmenn fyrirtækja, stórra sem smárra, eru hvattir til að mæta og taka þátt ásamt öllu áhugafólki um uppbyggingu atvinnulífsins.  

Formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilmundur Jósefsson, segir að í komandi viðræðum verði lögð á það áhersla af hálfu SA að allir hópar fái sambærilega og hóflega launahækkun og að samningar allra aðila hafi sama gildistíma sem verði allt að þremur árum. „Ríkisstjórnin verður að koma að borðinu þar sem Samtök atvinnulífsins leggja áherslu á að tryggja atvinnuuppbyggingu og að greitt verði fyrir fjárfestingum. Einnig verður að taka til baka margar af þeim skattabreytingum sem ákveðnar hafa verið og gera ekki annað en að gera starfskilyrði atvinnulífsins verri en í nálægum löndum og eru ekki til þess fallnar að auka tekjur ríkisstjóðs. Þá verður að eyða óvissu um rekstrarskilyrði sjávarútvegsins," segir Vilmundur.

Formaður Samtaka atvinnulífsins leggur þunga áherslu á að það sé algjört forgangsmál að koma atvinnulífinu af stað á nýjan leik, skapa ný störf og minnka atvinnuleysið sem allra fyrst. Að því muni SA stefna. Fyrsti fundurinn fer fram í hádeginu þriðjudaginn 9. nóvember á Hótel Ísafirði, annar fundurinn verður að morgni fimmtudagsins 11. nóvember á Hótel KEA á Akureyri, sá þriðji fer fram í hádeginu sama dag á Veitingahúsinu Sölku á Húsavík og sá fjórði verður haldinn í hádeginu föstudaginn 12. nóvember í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði.

Fundirnir eru öllum opnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA - http://www.sa.is/. Fleiri fundir verða auglýstir síðar víðar um landið en kjarasamningar á almennum vinnumarkaði renna út í nóvember og eru kjaraviðræður við verkalýðshreyfinguna þegar hafnar. Fundaröð SA er ætlað að upplýsa stjórnendur fyrirtækja um það sem er framundan og skapa umræðu til að fá skýrari mynd af stöðu atvinnumála og horfum á vinnumarkaði.

Nýjast