Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður opið frá kl. 10-16 í dag sunnudag. Í tilefni dagsins Snjór um víða veröld er frítt fyrir alla í fjallið í dag og það á reyndar við um önnur skíðasvæði landsins. Veðrið kl. 9:30 í Hlíðarfjalli, 6 m/sek og -2°C.
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Akureyri fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar var samþykktur samhljóða á félagsfundi í hádeginu í dag í húsakynnum félagsins.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands,HSN á Akureyri tekur nú þátt í tilraunaverkefni sem miðar að því að minnka pappírsvinnu lækna með hjálp gervigreindar. Um er að ræða tólið Skríban, sem umbreytir tali læknis í skipulagðar læknanótur í rauntíma. Markmiðið er að losa lækna undan tímafrekri skýrslugerð svo þeir geti varið meiri tíma með skjólstæðingum sínum.
Tónlistarfélag Akureyrar stendur fyrir tvennum Stabat Mater tónleikum nú á föstunni undir yfirskriftinni Mærin Mæra en það er tilvitnun í þýðingu Matthíasar Jochumssonar á ljóðinu; Stóð við krossin mærin mæra mændi á soninn hjartakæra.
Nýr skíðagönguspori var vígður í Vaglaskógi á árlegum fjölskyldudegi UMF Bjarma. Félagið fjárfesti nýverið í sporanum ásamt beltabúnaði og tönn, sem verður sett undir nýtt sexhjól Lands og Skóga.
Búnaður af þessu tagi kostar nokkrar milljónir, sem e...
Árleg Forvarnaráðstefna VÍS var haldin í Hörpu fimmtudaginn 12. mars en á ráðstefnunni var fjallað um öryggismál og forvarnir fyrirtækja og stofnana frá öllum hliðum. Að þessu sinni var ráðstefnan tileinkuð umferðaröryggi og boðið uppá erindi, reynslusögur og innsýn í öflugt öryggisstarf fyrirtækja, auk umfjöllunar um þær áskoranir sem steðja að íslensku samfélagi á þessu sviði.
„Það er alltaf mjög mikið um að vera hjá okkur í marsmánuði og við vel sýnileg. Við finnum vel fyrir aukinni aðsókn þegar Mottumars er í fullum gangi. Það sýnir að vitundarvakning af því tagi skiptir gríðarlega miklu máli,“ segir Marta Kristín Rósudóttir verkefnastjóri dagskrár og viðburða hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis.