Við vonumst til að allt verði klárt fyrir jól og erum mjög spennt fyrir því að taka nýja hluta byggingarinnar í notkun, enda breytir það miklu fyrir okkur, segir Smári Sigurðsson framkvæmdastjóri Kirkjugarða Akureyrar. Framkvæmdir við viðbyggingu við kapellu og líkhús Kirkjugarðanna hafa staðið yfir frá því í vor.
Smári segir að nokkrar tafir hafi orðið á framkvæmdum, en til stóð í upphafi að byggingin yrði tilbúin 1. október sl. Hann segir að mikil þörf hafi verið orðin á breytingum á húsnæði Kirkjugarðanna, í sjálfu sér vantaði ekki þá fermetra sem við bætast með tilkomu nýbyggingarinnar heldur muni hún breyta og bæta allt vinnulag innanhúss.
Um 180 athafnir fara fram í kapellu á ári, m.a. kistulagningar og útfarir og húsnæðið hafi nánast verið í gíslingu eins og hann orðar það á meðan. Þeir sem áttu önnur erindi í húsið gengu ef svo má segja beint inn í þær athafnir sem stóðu yfir. Með breytingum sem verða með nýbyggingunni er slíkt úr sögunnim nýr inngangur verður tekin í notkun fyrir útfararþjónustuna og þá verður einnig til staðar bakdyrainngangur úr líkhúsi. Að auki segir Smári að vinnuaðstaða og aðbúnaður starfsfólks breytist til batnaðar.
Þá er horft til framtíðar og líkgeymsla verður stærri en áður, enda segir Smári að búast megi við að greftrunum muni fjölga í nánustu framtíð, margt fólk búi nú á Akureyri sem náð hafi háum aldri. Við gerum í okkar áætlunum ráð fyrir að fjölgun dauðsfalla frá því sem nú er, þannig að við búum okkur undir að geta tekið við fleirum en við gátum áður.
Til hefur staðið í mörg ár að sögn Smára að fara út í þær framkvæmdir sem nú standa yfir, þær voru ákveðnar löngu fyrir hrun og kreppu, eða fyrir 12 árum síðan, en af ýmsum ástæðum dróst að hefja þær fyrr en nú á liðnu vori.